Frá vegferð til veruleika

Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025

Áfangar í starfsemi

Verðlaun

Þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar hlaut UT-verðlaun Ský fyrir bestu opinberu stafrænu þjónustuna. Verðlaunin byggðu á árangri og verkefnum sviðsins á árinu 2025. Verðlaunin eru veitt árlega þeim lausnum sem þykja skara fram úr í stafrænni þróun og þjónustu. Verðlaunin eru veitt fyrir öfluga og samfellda stafræna umbreytingu þar sem notendamiðuð þjónustuhönnun og gagnadrifin nálgun hafa verið höfð að leiðarljósi.

Í umsögn Ský kom fram: 

Þjónustu- og nýsköpunarsvið er hjartað í stafrænni umbreytingu Reykjavíkurborgar þar sem þjónustuhönnun, notendamiðuð þróun og gagnadrifin ákvarðanataka eru höfð að leiðarljósi. Sviðið hefur einfaldað ferla, aukið aðgengi og styrkt þverfaglegt samstarf þannig að borgarbúar fá góða og skilvirka þjónustu. 

Árið 2025 þróaði og innleiddi sviðið fjölmargar stafrænar lausnir sem bæta samfellu og sjálfsafgreiðslu og færa tíma starfsfólks frá umsýslu yfir í virði fyrir notendur. Þar má nefna Veitu, sameiginlegt umsóknakerfi um fjárhagsaðstoð, SkólaBúa í þágu farsældar barna, notendavæna gervigreindaraðstoð á vef sem hefur dregið verulega úr álagi í þjónustuveri og innleiðing stafræns vinnuafls sem sinnir síendurteknum verkefnum með sjálfvirkum hætti.

Alþjóðleg umfjöllun

Reykjavíkurborg vakti alþjóðlega athygli þegar Forbes birti greinina What Every City Can Learn From Reykjavik’s Digital Transformation eftir Jonathan Reichental í október 2025.

Í greinnni er fjallað um stafræna umbreytingu Reykjavíkurborgar sem fyrirmynd fyrir aðrar borgir, meðal annars með áherslu á notendamiðaða þjónustu, stafræna stjórnsýslu og markvissa nýtingu tækni til að bæta þjónustu við íbúa.

Teikning sem lýsir notendamiðaðri þjónustu.

Alþjóðleg þátttaka

Þjónustu- og nýsköpunarsvið tók virkan þátt í alþjóðlegu samtali um stafræna umbreytingu borga á árinu. Fulltrúar sviðsins kynntu reynslu Reykjavíkurborgar fyrir fyrsta hópi Bloomberg LSE European City Leadership Initiative í Berlín, þar sem fjallað var um mælingar á áhrifum nýsköpunar og hvernig gögn og þjónustuhönnun eru nýtt til að endurhugsa borgarþjónustu og byggja betri borg fyrir börn.

Sviðið tók einnig þátt á Smart City Expo World Congress í Barcelona, þar sem fulltrúi Reykjavíkurborgar tók þátt í pallborði á vegum UN-Habitat um nýtingu stafrænnar nýsköpunar til að bæta aðgengi að húsnæði og þjónustu.

Þá tóku fulltrúar starfsfólks og borgarfulltrúa þátt í samtali og samstarfi á vettvangi Cities Coalition for Digital Rights, sem Reykjavíkurborg hefur unnið með undanfarin ár. Þar er lögð áhersla á hlutverk borga í að standa vörð um stafrænan rétt íbúa, persónuvernd, jafnræði og lýðræðislega ábyrgð við innleiðingu nýrrar tækni.

Mannauður

Öflug vinnustaðamenning og virk samskipti

Á árinu 2025 var áfram lögð áhersla á að efla vinnustaðamenningu, styrkja upplýsingaflæði og auka þátttöku starfsfólks. Starfsmannafundir fóru að festa sig í sessi sem reglulegur vettvangur samskipta og samráðs, en markmiðið er að halda fjóra fundi á ári þar sem farið er yfir helstu verkefni, árangur og áherslur sviðsins.

Jafnframt var starfsánægjukönnunin Púlsinn lögð fyrir nokkrum sinnum yfir árið til að taka reglulega stöðuna á líðan og upplifun starfsfólks. Niðurstöðurnar voru jákvæðar og sýndu að starfsfólk upplifir gott starfsumhverfi og ánægju í starfi.

Fólk í fyrsta sæti

Great Place to Work®

Sviðið náði framúrskarandi árangri í úttekt Great Place to Work® á árinu 2025. Great Place to Work® er alþjóðlegt viðurkenningarkerfi sem metur vinnustaðamenningu út frá upplifun starfsfólks og þeim stjórnarháttum sem móta starfsumhverfið.

Þjónustu- og nýsköpunarsvið hlaut 2. sæti á lista Great Place to Work® yfir bestu vinnustaði á Íslandi árið 2025. Viðurkenningin byggir á trúnaðarkönnun meðal starfsfólks og endurspeglar sterka vinnustaðamenningu sem einkennist af trausti, virðingu, samvinnu og jákvæðri starfsreynslu.

Best Workplace for Women™

Sviðið hlaut jafnframt viðurkenningu á lista Great Place to Work® yfir bestu vinnustaði fyrir konur™ á Íslandi.

Viðurkenningin er veitt þeim fyrirtækjum sem skara fram úr í að skapa vinnuumhverfi þar sem konur upplifa jafnræði, sanngirni og tækifæri til starfsþróunar. Matið byggir á nafnlausum svörum starfsfólks og greiningu á vinnustaðamenningu, leiðtogaháttum og gildum fyrirtækisins.

Viðurkenningin staðfestir áframhaldandi áherslu sviðsins á jafnrétti, inngildingu og starfsumhverfi þar sem allir fá tækifæri til að vaxa og dafna í starfi.

Fræðsla og þróun starfsfólks

Á árinu var lögð áhersla á fræðslu og þróun starfsfólks. Meðal þeirra verkefna sem stóðu upp úr voru:

  • Framkomunámskeið fyrir starfsfólk
  • Markviss nýliðafræðsla sem styður við góða móttöku og aðlögun nýs starfsfólks
  • Regluleg fræðsla og upplýsingamiðlun sem stuðlar að faglegri þróun og aukinni þekkingu innan sviðsins

Starfsdagur 2025

Þann 2. október var haldinn árlegur starfsdagur þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Dagurinn tókst afar vel með góðri þátttöku starfsfólks, jákvæðu andrúmslofti og fjölbreyttum dagskrárliðum sem efldu samheldni og samstarf þvert á sviðið. 

Fjölbreytileiki og inngilding

Sviðið lagði áfram áherslu á fjölbreytileika og inngildingu á vinnustaðnum. Þann 16. maí, á alþjóðlegum baráttudegi hinseginfólks gegn fordómum, var dagsins minnst með regnbogavöfflum og fræðsluerindi fyrir starfsfólk. Með slíkum viðburðum leitast sviðið við að stuðla að virðingu, sýnileika og vinnuumhverfi þar sem öllum líður vel og geta verið þau sjálf.

Heilsuefling og velferð starfsfólks

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leggur áherslu á að skapa eftirsóknarvert starfsumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks er í forgrunni. Hluti af þeirri stefnu er að bjóða upp á fjölbreytt úrræði sem styðja við heilsu, menningu og sjálfbærar samgöngur.

Á árinu 2025 nýtti starfsfólk sér eftirfarandi úrræði:

  • Heilsuræktarstyrk: 90 starfsmenn
  • Samgöngustyrk: 69 starfsmenn
  • Reykjavíkurkort (sund- og menningarkort): 159 starfsmenn

Þátttakan sýnir skýrt áhuga starfsfólks á heilsueflingu, hreyfingu og menningarstarfi og styður við markmið sviðsins um að skapa heilsusamlegt, fjölbreytt og aðlaðandi starfsumhverfi.