Árskógar
Félagsstarf
Árskógar 4
109 Reykjavík

Opnunartími
Félagsstarfið í Árskógum er opið kl. 8:30–16:00 alla virka daga
- Hádegismatur kl. 11:30–13:00 (matarpöntun þarf að berast fyrir kl.15:00 daginn áður)
- Síðdegiskaffi 14:45–15:30
Dagskrá
Í Árskógum er rekið opið félagsstarf fullorðinna, 18 ára og eldri og öll velkomin. Opið félagsstarf felur í sér að ókeypis aðstaða/húsnæði er í boði og er það opið verktökum sem geta staðið þar fyrir ýmsum námskeið. Starfsfólk félagsstarfsins getur þó verið hópum innan handar um ýmis viðvik.
Félagsstarf með stuðningi er fyrir þá sem af einhverjum orsökum þurfa á stuðningi að halda til að geta stundað félagsstarf. Greitt er lágt þátttökugjald fyrir umsjón leiðbeinenda.
Þjónusta
Markmið félagsstarfs er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf auk fjölda námskeiða. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja frumkvæði og hæfileika hvers og eins.
Félagsstarfið í Árskógum er opið frá kl. 8:30–16:00 alla virka daga. Þar fer fram fjölbreytt starfssemi með það að markmiði að höfða til sem flestra. Færir leiðbeinendur, sjálfboðaliðar og verktakar leiða öfluga dagskrá með skemmtilegum og fjölbreyttum verkefnum. Hægt er að kaupa hádegisverð, en panta og afpanta þarf með fyrirvara eða í síðasta lagi kl. 9:00 þann dag sem á borða. Bæði er hægt að vera í fastri áskrift og/eða panta þegar hentar. Reikningur er sendur í heimabanka eftir hvern mánuð. Morgunverður og kaffisala er í boði á vegum Skógarbæjar sem öllum er velkomið að sækja.
Félagsrýmið er með fjölbreyttri aðstöðu sem nýtist vel fyrir ýmiskonar hreyfingu, félagsstarf, fundi og ýmsa viðburði. Einnig er hægt að dansa, bjóða í kaffi, spjalla, sjá bíósýningar, halda fyrirlestra og margt fleira.
Frjáls aðgangur er að opnum rýmum en þó þarf að athuga hvort rýmin séu laus það skiptið því fastsettir tímar eru fyrir mismunandi tómstundir. Einnig er möguleiki á að lána húsnæðið til ýmiskonar námskeiða, hópa- og klúbbastarfs eftir opnunartíma. Gestir hafa aðgang að tölvu og spjaldtölvum og nýjustu dagblöðin liggja jafnan frammi til lestrar.
Starfsfólk tekur öllum hugmyndum fagnandi og það er tilbúið að vinna að þeim með þér svo ekki hika við að hafa samband viljir þú hafa frumkvæði að félags- eða tómstundastarfi í félagsstarfi fullorðinna í Árskógum.
- Baðþjónusta - sími 411 9600
- Fótaaðgerðastofa Rósu - sími 862 7575
- Hársnyrtistofa Rebekku - sími 510 2115 og 869 6998
- Akstursþjónusta eldra fólks
Umsjónarmaður Félagsstarfs í Árskógum er Anna Bjarnadóttir.
Símatími kl. 8.30–15.00 alla virka daga í síma 411 2600.
Strætó
Strætisvagnar sem stoppa nálægt eru leiðir 3 og 4.