Deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg

Samgöngur Skipulagsmál

""

Opið hús og kynningarfundur fyrir landeigendur og aðra hagsmunaaðila var haldinn í Fólkvangi á Kjalarnesi 24. ágúst 2017 kl. 17.30 vegna tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg á Kjalarnesi. Fundurinn var vel sóttur.

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og Vegagerðin boðuðu til opins húss/ kynningarfundar til að kynna drög sem liggja fyrir við gerð deiliskipulags fyrir Vesturlandsveg á Kjalarnesi. 
 
Í vinnslu er nýtt deiliskipulag fyrir Vesturlandsveg frá sveitarfélagsmörkum við Mosfellsbæ að Hvalfjarðargöngum. Um er að ræða ca. 14 km kafla og skilgreint helgunarsvæði Vesturlandsvegar. Tildrög verkefnisins eru að Vegagerðin hyggur á næstu árum á framkvæmdir á um 9 km kafla fyrir 2+1 veg frá Hvalfjarðargöngum að Kollafirði í núverandi vegastæði. Einnig er vonast til þess að með skipulagsvinnunni  náist heildstætt yfirlit yfir alla aðra samgönguþætti sem þarf að útfæra nánar í skipulagi, þ.e hliðarvegi, göngustíga, reiðleiðir og hjólaleiðir. Meðal markmiða skipulagsins og framkvæmda er að Vesturlandsvegur verði endurbættur til að auka öryggi umferðar og greiða fyrir umferð og er því verið að skoða fækkun tenginga við þjóðveginn með gerð hliðarvega sem tengjast við þjóðveginn með hringtorgum á völdum stöðum.
 
Fundurinn var haldinn í Fólkvangi á Kjalarnesi og var vel sóttur. Fulltrúar frá Samgöngudeild og Skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Vegagerðinni og ráðgjafar frá Eflu verkfræðistofu og Landslagi landslagsarkitektum voru á fundinum og kynntu efnið fyrir fundargestum og tóku við fyrirspurnum og ábendingum inn í vinnuna. Í framhaldinu þá verður unnin tillaga að deiliskipulagi og nýtast þær ábendingar sem komu fram á fundinum inn í þá vinnu. Gera má ráð fyrir að tillaga að deiliskipulagi verði auglýst síðar á árinu.
 
Kynningar
Vesturlandsvegur - Landslag (kynning, pdf)
Vesturlandsvegur - Efla (kynning, pdf)
 
Tengill