16354 Kaup á tryggingum fyrir starfsemi og starfstöðvar SORPU bs. og dótturfélaga

Kaup á tryggingum fyrir starfsemi og starfstöðvar SORPU bs. og dótturfélaga, EES útboð nr. 16354

Skrifstofa fjármálaþjónustu og innkaupa (hér eftir nefnd skrifstofan), f.h. SORPU bs (hér eftir nefndur kaupandi) óskar eftir tilboðum í kaup á tryggingum fyrir alla starfsemi og starfstöðvar SORPU bs. og dótturfélaga samkvæmt þessum útboðsgögnum.

Vátryggingar samkvæmt útboðinu skulu ná til starfsemi dótturfélaga SORPU bs., eins og þau eru tilgreind í tilboðsbók, hvort sem vátrygging er skráð á SORPU bs. eða viðkomandi dótturfélag. Ný dótturfélög sem stofnuð eru á samningstíma skulu njóta sömu kjara. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00 þann 5. nóvember 2026. Hægt er að breyta tungumáli vefsíðunnar með því að velja "Íslenska" í flettiglugganum neðst til vinstri.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 7. desember 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026.