16352 Könnunarhugbúnað fyrir Reykjavíkurborg, markaðskönnun (RFI) / Survey Software for the City of Reykjavík, market survey (RFI)

Þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar óskar eftir upplýsingum um: 

Könnunarhugbúnað fyrir Reykjavíkurborg, markaðskönnun (RFI)  nr. 16352. 

Markaðskönnun þessi fer fram á grundvelli 45. gr. laga um opinber innkaup og er undanfari innkaupa á könnunarhugbúnaði. Tilgangur markaðskönnunarinnar er að afla upplýsinga um könnunarhugbúnaði sem er í boði á markaði, þar á meðal virkni, rekstrarform, þjónustu og kostnað. Upplýsingarnar verða nýttar til að fá yfirsýn yfir markaðinn og bera saman mögulegar lausnir.

Reykjavíkurborg ábyrgist ekki að markaðskönnun þessi leiði til innkaupa. Þátttaka eða þátttökuleysi hefur ekki áhrif á stöðu aðila í mögulegu framtíðarútboði.

Reykjavíkurborg óskar eftir upplýsingum um lausnir sem nýtast við framkvæmd samræmdra kannana þvert á svið borgarinnar. Áhersla er lögð á að lausnin nýtist við gerð og dreifingu kannana, söfnun endurgjafar frá notendum, greiningu gagna sem og framsetningu og miðlun niðurstaðna, allt á skilvirkan, öruggan og notendavænan hátt.

Markaðskönnunargögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni:  https://supplier.in-tend.co.uk/reykjavik/tenders/details/22541357-91c5-48d6-89e0-bad825999dc2  frá kl. 10:30 þann 16. september 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Gögnum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 23:59, þann 5. október 2026.

 

Survey Software for the City of Reykjavík, market survey (RFI) nr. 16352

The purpose of this market survey is to gather information about available survey software, including functionality, operating models, services and costs. The information will provide an overview of the market and support comparison of potential solutions.

Participation is non-binding and does not commit the City of Reykjavík to a purchase or contract. Participation or non-participation will not affect any future procurement process.

The City of Reykjavík seeks solutions that support consistent survey delivery across its departments. The solution should enable efficient, secure and user-friendly survey design, distribution, data collection, analysis and reporting.

Market survey documents will be available exclusively on the City of Reykjavík’s procurement portal at: https://supplier.in-tend.co.uk/reykjavik/tenders/details/22541357-91c5-48d6-89e0-bad825999dc2  – starting at 10:30 on 16th September 2026. Companies can register by clicking  ,,New Registration“.

Please note that all inquiries must be submitted via the City of Reykjavík’s procurement portal. Inquiries received through other channels will not be answered.

Documents must be submitted electronically via the aforementioned City of Reykjavík procurement portal no later than 23:59 on 5th October 2026.