16325 Iðnstýringa- og sjálfvirknikerfi (SCADA/PLC) fyrir rekstrarumhverfi, markaðskönnun
Sorpa bs. óskar eftir upplýsingum í:
Iðnstýringa- og sjálfvirknikerfi (SCADA/PLC) fyrir rekstrarumhverfi, markaðskönnun nr. 16325.
SORPA bs. óskar eftir upplýsingum frá fyrirtækjum sem bjóða upp á hönnun, innleiðingu og þjónustu á Iðnstýringa- og sjálfvirknikerfi (SCADA/PLC) fyrir iðnaðar- og rekstrarumhverfi.
Með markaðskönnuninni er verið að að afla upplýsinga um birgja, lausna og þjónustugetu vegna framtíðarverkefna tengdra sjálfvirkni, rekstrarstýringu og eftirlitskerfum..
Markaðskönnunargögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 11:00 þann 24. júní 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Gögnum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 14:00, þann 8. júlí 2026.