16313 Rammasamningur um túlka- og þýðingarþjónustu. EES
Skrifstofa fjármálaþjónustu og innkaupa óskar eftir tilboðum í rammasamning um túlka- og þýðingarþjónustu samkvæmt þessum útboðsgögnum. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð. Útboðinu er skipt í eftirfarandi fjóra hluta:
- Hluti 1: Almenn túlkaþjónusta
- Hluti 2: Rafræn túlkaveita
- Hluti 3: Almenn þýðingarþjónusta
- Hluti 4: Þjónusta löggiltra skjalaþýðenda
Nánari upplýsingar um þá þjónustu sem fellur undir samninginn er að finna í kafla 2 útboðslýsingar. Táknmálstúlkun er ekki hluti af þessu útboði.
Ekki er ljóst hvaða magn verður keypt á grundvelli útboðs þessa, þar sem rammasamningar eru gerðir um tiltekna vöru eða þjónusta í tiltekinn tíma, án þess að magntölur séu þekktar, en ársvelta Reykjavíkurborgar 2025 var um 140 milljónir án virðisaukaskatts. Undanskilin frá þessum samningi eru kaup á þjónustu fyrir Reykjavíkurborg til að uppfylla sértækar þarfir fyrir allt að 10% af veltu samnings.
Hámark samanlagðra viðskipa á grundvelli þessa samnings er kr. 600.000.000,- án virðisaukaskatts, miðað við fjögurra ára samning.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 28. september 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 29. október 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026.