16311 Umsjónarkerfi fyrir börn í leikskólum, hjá dagforeldrum og í frístund. Forval. EES útboð
Óskað er eftir umsóknum í forval vegna umsjónarkerfis fyrir börn í leikskólum, hjá dagforeldrum og í frístund vegna samkeppnisviðræðna , EES útboð nr. 16311.
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar fyrir hönd þjónustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavíkurborgar (hér eftir kaupandi), óskar eftir áhugasömum aðilum til þátttöku í samkeppnisviðræðum vegna umsjónarkerfis fyrir börn í vistun leikskóla, frístundastarfs og dagforeldra.
Forvalsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 3. júní 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Umsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 8. júlí 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má upplýsingar um skil eftir opnun á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026.