16307 Innleiðing Sharepoint hjá Reykjavíkurborg

Óskað er eftir tilboðum í Innleiðing SharePoint Online hjá Reykjavíkurborg, EES útboð nr. 16307

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar f.h. þjónustu- og nýsköpunarsviðs óskar eftir tilboðum í innleiðingu SharePoint Online hjá Reykjavíkurborg samkvæmt þessum útboðsgögnum. Um er að ræða almennt útboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 12:30 þann 22. júní 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 19. ágúst 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026