16074 Rammasamningur um akstur með fatlað fólk og aldraða einstaklinga með leigubifreiðum.

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar, f.h. Strætó  óskar eftir aðilum til þátttöku í Rammasamningi um akstur með fatlað fólk og aldraða einstaklinga með leigubifreiðum. Um er að ræða rammasamning sem byggir á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016. Samningurinn gildir í 28 mánuði frá því að samningur er kominn á.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:45 þann 15. nóvember 2024. 

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 19. desember 2024.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni 

https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024