16040 Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2024-2025. Húsagötur, samkeppnisútboð

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2024-2025. Húsagötur, samkeppnisútboð nr. 16040

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í snjóhreinsun húsagatna í Reykjavík. Reykjavíkurborg er skipt upp í 17 svæði. Svæði eru svipuð að stærð og gengið út frá því að eitt tæki geti annað snjóhreinsun á á hverju svæði.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12:00: þann 4. júlí 2024.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 20. ágúst 2024.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024