16034 Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2024-2025. Stofnleiðir, EES samkeppnisútboð
F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2024-2025. Stofnleiðir, EES samkeppnisútboð nr. 16034
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í hálkueyðingu og snjóhreinsun gatna í Reykjavík. Reykjavíkurborg er skipt upp í 8 svæði. Svæði eru svipuð að stærð og gengið út frá því að ein vörubifreið geti annað snjóruðningi og hálkuvörnum á hverju svæði.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:00: þann 25. júní 2024. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 29. júlí 2024.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2024