Tillaga að starfsleyfi - USK, skrifstofa borgarlands - losunarstaður á Hólmsheiði

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, skrifstofu borgarlandsins fyrir nýja starfsemi á losunarstað á Hólmsheiði. Um er að ræða móttöku á úrgangi til endurvinnslu. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði til loka september 2026. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 13. maí til 10. júní  2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is