Tillaga að starfsleyfi - Skotveiðifélag Reykjavíkur og nágrennis, skotvöllur í Álfsnesi
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Skotveiðifélags Reykjavíkur og nágrennis (SKOTREYN) kt. 440687-1809 fyrir starfsemi skotvallar í Álfsnesi. Um er að ræða endurnýjun á starfsleyfi. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi Starfsleyfisskilyrði fyrir Skotveiðifélag Reykjavíkur og nágrennis, kt. 440687-1809, fyrir skotvöll í Álfsnesi og Almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði til 31. desember 2028. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 13. desember 2024 til 15. janúar 2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.