Tillaga að starfsleyfi - Kirkjugarðar Reykjavíkur, moltugerð í Fossvogskirkjugarði

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Kirkjugarða Reykjavíkur að Vesturhlíð 8 vegna umsóknar um starfsleyfi fyrir moltugerð neðst í Fossvogskirkjugarði v/Vesturhlíð, 105 Reykjavík. Um er að ræða moltugerð, u.þ.b. 80 rúmmetra á ári. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 19. desember 2023 til 19. janúar 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.