Tillaga að starfsleyfi - Íslenska gámafélagið að Kalksléttu 1, móttökustöð fyrir úrgang, flutningur á úrgangi og flutningur á spilliefnum
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Íslenska gámafélagið að Kalksléttu 1 vegna breytingar á starfsemi. Um er að ræða Móttökustöð fyrir úrgang, flutning á úrgangi og flutning á spilliefnum. Breytingin felst í því að rekstraraðila verði heimilt að endurnýta glerúrgang. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi Starfsleyfisskilyrði fyrir Íslenska gámafélagið ehf. fyrir starfsemi móttökustöðvar fyrir úrgang að Kalksléttu 1, flutningi á úrgangi og flutningi á spilliefnum, almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir flutning spilliefna og starfsskilyrði fyrir flutningi úrgangs, annars en flutningi úrgangs á milli landa og flutningi spilliefna. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 05.05 til 02.06 2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.