Tillaga að starfsleyfi - Hygge Coffee and Microbakery (kaffihús) að Barónsstíg 6

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Lev 103 ehf., Hygge Coffee and Microbakery, að Barónsstíg 6, ný starfsemi. Um er að ræða veitingastað; kaffihús þar sem sætmeti er framleitt og bakað á staðnum, ásamt framleiðslu á forpökkuðum sultum, salötum, mauki og skálum, til dreifingar á aðra staði sömu keðju. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði fyrir samkomustaði. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á tímabilinu 26. maí til 23. júní 2025.  Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit(hjá)reykjavik.is.