Tillaga að starfsleyfi - Hekla hf., Laugavegur 174

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Heklu hf. að Laugavegi 174 F2012323 vegna endurnýjunar starfsleyfis. Um er að ræða smurstöð, bifreiða- og vélaverkstæði, hjólbarðaverkstæði og bón- og bílaþvottastöð, handvirkri. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar og starfsskilyrði fyrir bifreiða- og vélaverkstæði. Lagt er til að gildistími verði til 1. mars 2027. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 2. til 30 ágúst 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is