Tillaga að starfsleyfi - Daggæsla að Borgartúni 21
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Hildi Ósk Kolbeins að Borgartúni 21 vegna nýrrar starfssemi. Um er að ræða daggæslu dagforeldra. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði fyrir dagvistun 6 - 10 barna í heimahúsum. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 13. maí til 10 júní. 2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Í gildi er undanþága Umhverfis-, Orku og Loftslagsráðuneytis frá ákvæði 27. greinar reglugerðar 903/2024 um hollustuhætti um að daggæsla sé starfrækt í heimahúsi.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.