Tillaga að starfsleyfi - Berjaya Iceland hotels, þvottahús við Síðumúla 16-18

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Berjaya Iceland hotels við Síðumúla 16-18 vegna flutninga í nýtt húsnæði. Um er að ræða þvottahús. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi. Lagt er til að gildistími verði 12 ár. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 15. maí - 12. júní 2024. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is