Austurmiðstöð - þrettándabrenna og flugeldasýning 6. janúar 2024

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Austurmiðstöð, þjónustumiðstöð fyrir Árbæ, Norðlingaholt, Grafarvog, Grafarholt, Grafarvogs, Úlfarsdals og Kjalarness vegna þrettándabrennu og flugeldasýningar 6. janúar 2024 á brennustæði við Gufunesbæ. Um er að ræða litla brennu. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi, samræmd starfsleyfisskilyrði fyrir brennur og leiðbeinandi reglur fyrir áramótabrennur. Lagt er til að gildistími verði 6. janúar 2024 frá kl. 16:00 til kl. 21:00. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 18. október til 16. nóvember 2023. Á  þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is