Frá vegferð til veruleika

Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025

Borgarskjalasafn

Borgarskjalasafn Reykjavíkur – staða yfirfærslu til Þjóðskjalasafns Íslands

Á árinu 2025 var áfram unnið að umfangsmikilli yfirfærslu verkefna, hlutverka og safnkosts Borgarskjalasafns Reykjavíkur til Þjóðskjalasafns Íslands í samræmi við ákvörðun borgarstjórnar frá árinu 2023 og sameiginlega aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar og menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Verkefnið er fordæmalaust að umfangi hér á landi og hefur því verið unnið í áföngum með reglulegu endurmati á verk- og tímaáætlun.

Fyrri áfangi yfirfærslunnar tók gildi 1. janúar 2024 þegar ábyrgð á rafrænum skilum, rafrænum safnkosti, viðtöku nýrra pappírsskjalasafna, eftirliti og ráðgjöf færðist til Þjóðskjalasafns Íslands. Á sama tíma tók Skrifstofa upplýsinga- og skjalastýringar hjá Reykjavíkurborg við innri ráðgjöf og samræmingu skjalamála innan borgarinnar.

Seinni áfangi

Á árinu 2025 beindist megináherslan að seinni áfanga verkefnisins, sem fól í sér yfirfærslu pappírssafnkosts Borgarskjalasafns, fyrirspurnaþjónustu, vefmála, stafrænna afrita og málasafns safnsins.

Við framkvæmd verkefnisins kom í ljós að pappírssafnkostur krafðist mun umfangsmeiri yfirferðar og skráningarvinnu en upphaflega var áætlað. Sérstaklega hafa auknar kröfur um frágang, öskjuskipti, merkingar og skráningar samkvæmt stöðlum Þjóðskjalasafns haft áhrif á framvindu verksins.

Mappa í glerkúpli.

Tímamót í þróun skjala- og upplýsingastjórnunar

Verulegur árangur náðist þó á árinu. Lokið var yfirfærslu eldri spjaldskrár og geymsluskráa í Scope-skjalaskrárkerfið og frágangi og skráningu opinberra gagna. Jafnframt var unnið áfram að skráningu einkaskjalasafna og yfirfærslu geymsluskráa í skjalaskrárkerfi Þjóðskjalasafns með það að markmiði að tryggja samræmda skráningu og rekjanleika safnkostsins.

Yfirfærsla Borgarskjalasafns markar tímamót í þróun skjala- og upplýsingastjórnunar hjá Reykjavíkurborg. Verkefnið hefur styrkt samstarf borgarinnar og Þjóðskjalasafns Íslands, skýrt ábyrgðarskiptingu í skjalamálum og lagt grunn að samræmdari varðveislu og aðgengi að heimildum um sögu og stjórnsýslu Reykjavíkur til framtíðar.