Sjafnargata 10

Kynning fyrir hagsmunaaðila

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 1. júní 2023 var lögð fram tillaga um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að gerð hefur verið geymsla fyrir íbúð 0201 í þakrými og skorsteinn hefur verið fjarlægður, einnig er sótt um leyfi til þess endurgera og stækka svalir íbúðar 0201, byggja nýjar steinsteyptar svalir, útigeymslu og tröppur niður á verönd í séreign íbúðar 0101 við austurhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 10 við Sjafnargötu samkvæmt uppdráttum marimo arkitekta dags. 4. maí 2023.

Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Sjafnargötu 8 og 12 og Fjölnisvegi 7, 9, 11 og 13.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Sigríður Maack.

Kynning hefst þann 20. júní 2023 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 18. júlí 2023.

Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.