Sigtún 38 og 40A

Grenndarkynning á deiliskipulagi

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 9. mars 2023 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits vegna lóðarinnar nr. 28 (38) og 40A við Sigtún. Í breytingunni sem lögð er til felst að flytja lóð fyrir spennistöð og breyta skilmálum þannig að hún verði neðanjarðar með aðkomu um aksturs skábraut, samkvæmt uppdr. Atelier arkitekta dags. 25. febrúar 2023.

Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Engjateigi 1, 3, 5 og 7 og Sigtúni 30.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Lilja Grétarsdóttir.

Kynning hefst þann 29. mars 2023 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 30. maí 2023.

Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.