Ægisíða 62

Grenndarkynning á deiliskipulagi

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. apríl 2023 var lögð fram tillaga um breytingu á deiliskipulagi Ægisíðu frá Hofsvallagötu að Lynghaga vegna lóðarinnar nr. 62 við Ægisíðu. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit lóðarinnar sem felst í að byggingarreit er skipt niður þannig að aðalreitur verður í kringum núverandi byggingu og minni reitur fyrir sjálfstæða viðbyggingu, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Alternance slf. dags. 26. janúar 2023.

Með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga nr. 123/2010 er eftirtöldum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Húseigendum að Ægissíðu 60 og 64 og Tómasarhaga 35, 37, 39 og 41.

Bent skal á að leigutakar húsnæðis á ofangreindum lóðum teljast einnig til hagsmunaaðila og skulu húseigendur kynna tillöguna fyrir þeim.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá skipulagsfulltrúa, verkefnisstjóri er Sólveig Sigurðardóttir.

Kynning hefst þann 19. apríl 2023 og skal athugasemdum við ofanskráða tillögu komið til skipulagsfulltrúa skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is eigi síðar en 22. maí 2023.

Umhverfis- og skipulagssvið notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Reykjavíkurborg má finna hér.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn borgarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.