Púlsinn
Púlsinn - bráða- og viðbragðsteymi er fyrir börn á aldrinum 10–18 ára sem beita eða hóta líkamlegu ofbeldi og fjölskyldur þeirra.
Púlsinn er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Barna- og fjölskyldustofu.
Bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna
Skóli, félagsmiðstöð, félags- og barnaverndarþjónusta, lögregla og aðrir sem veita börnum þjónustu geta virkjað Púlsinn.
Hann starfar tímabundið í máli hvers barns, allt frá nokkrum dögum upp í nokkrar vikur, í samstarfi við lögheimilissveitarfélag.
Markmið Púlsins
Markmið Púlsins er að bregðast hratt við ofbeldishegðun, veita barni og fjölskyldu stuðning og afstýra hættu á frekara ofbeldi. Í Púlsinum starfa félagsráðgjafar og sálfræðingur, auk einstaklingsráðgjafa og annars starfsfólks sem veitir börnum og fjölskyldum þeirra stuðning.
Ofbeldi þarf að hafa verið beitt af ásetningi til að Púlsinn komi að málum og þjónusta teymisins er sniðin að þörfum hvers barns fyrir sig. Þjónustan getur meðal annars falið í sér uppeldisráðgjöf inn á heimili, stuðning á skólatíma, tímabundna þjónustu utan skóla á skólatíma, einstaklingsstuðning og sálfræðiþjónustu, ýmist fyrir börnin sem fá þjónustu í teyminu eða fjölskyldur þeirra.
Ósk um aðkomu Púlsins
Þegar upp koma atvik meðal barna á aldrinum 10-18 ára með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ofbeldi er hótað eða því beitt af ásetningi, eru þjónustuveitendur hvattir til að hafa samband við Púlsinn í síma eða með tölvupósti til að fá ráðgjöf/speglun án persónugreinanlegra upplýsinga um mögulega aðkomu Púlsins.
Undir liðnum tengd skjöl hér neðar á síðunni geta þjónustuveitendur nálgast flæðirit þar sem hægt er að kynna sér hvernig óskað er eftir aðkomu Púlsins.
Upplýsingar um Púlsinn fyrir þjónustuveitendur:
Netfang: pulsinn@reykjavik.is
Símanúmer: 664 9800
Neðar á síðunni geta þjónustuveitendur að auki nálgast kynningarefni fyrir forsjáraðila og beiðni til að óska eftir þjónustu Púlsins á íslensku og ensku.
Þjónustuveitendur senda undirritaðar beiðnir til Púlsins í gegnum Signet-gátt Púlsins.