Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er vinsæll áfangastaður fyrir alla fjölskylduna þar sem gestir á öllum aldri geta notið samveru og skemmtunar. Í garðinum gefst einstakt tækifæri til að kynnast íslenskum húsdýrum sem og villtum spendýrum sem lifa á Íslandi. Garðurinn býður einnig upp á fjölbreytt leiksvæði, spennandi leiktæki og skjólgóð svæði sem gera gestum kleift að njóta útiveru í notalegu umhverfi allt árið um kring.
Ylströndin í Nauthólsvík
Ylströndin í Nauthólsvík er einstakur baðstaður í Reykjavík þar sem náttúra og manngert umhverfi mætast á skemmtilegan hátt. Þar myndar gylltur sandur fallega strönd við lón þar sem heitt vatn og kaldur sjór renna saman, sem gerir gestum kleift að njóta strandarinnar allt árið um kring. Við ströndina er góð aðstaða, þar á meðal heitir pottar, gufubað og búningsaðstaða.
Frístundagarðurinn við Gufunesbæ
Á túninu við Gufunesbæ er búið að gera skemmtilegt útivistarsvæði fyrir fjölskyldur og börn. Garðurinn er fjölskylduvænt útivistarsvæði þar sem m.a. er að finna ævintýrahól með göngum, leikkastala, vatnsleiktæki, lítinn burstabæ fyrir yngstu börnin og einnig ærslabelg, Petanque völl, folf braut, rathlaups braut og strandblak. Í garðinum er grillskýli með þremur kolagrillum.
Skíðasvæðin í borginni
Tækifæri til skíðaiðkunar í og við borgina eru fjölbreytt. Þrjár skíðalyftur fyrir börn og byrjendur eru starfræktar innan borgarinnar. Gönguskíðaspor eru lögð á ýmsum stöðum og skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli eru skammt utan borgarmarkanna.
Út um allt - Outdoor Activities in the Capital Region
Út um allt - Outdoor Activities in the Capital Region is an information site covering outdoor recreation areas and hiking and cycling routes across the region. The site is designed to give an overview of the wide range of outdoor options the capital area has to offer, covering all municipalities in the region.