Opið kall

Samsett teikning af fólki og styttum á blíðviðrisdegi í Reykjavík.

Myndlistarmönnum er boðið að taka þátt í forvali að lokaðri samkeppni um listaverk í almannarými í Vesturvin á Héðinsreit í Vesturbæ Reykjavíkur. 

Reykjavíkurborg og lóðarhafar sameinast um listsköpun á svæðinu til að auka gæði og gott umhverfi í borginni og er heildarfjárhæð sem um ræðir allt að sextán milljónir króna.

Samkeppnislýsing

Héðinsreitur afmarkast af Vesturgötu, Ánanaustum, Mýrargötu og Seljavegi og er samkeppnissvæðið stóri inngarður bygginganna í Vesturvin (Vesturgata 64).

 

Listasafn Reykjavíkur hefur umsjón með samkeppninni sem fer fram eftir samkeppnisreglum Sambands íslenskra myndlistarmanna (SÍM), það er lokuð samkeppni með opnu forvali.

 

Forvalsnefnd mun velja þrjá myndlistarmenn úr innsendum umsóknum til þátttöku í seinni hluta samkeppninnar.

Héðinsreitur, Vesturvin

Forval

Þau sem óska eftir því að taka þátt í forvali vegna samkeppninnar sendi eitt PDF skjal merkt með nafni þess sem sækir um og nafni svæðisins "Vesturvin". 

Skjalið skal innihalda eftirtaldar upplýsingar:

  • Ferilskrá með greinargóðum upplýsingum um listferil, nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang
  • 5 ljósmyndir af fyrri verkum
  • Texti: Heimilt er að senda inn stuttan texta þar sem fjallað er um reynslu, hæfni og áhugasvið þess sem sækir um og forsendur til að vinna verk í almannarými (hámark 200 orð).

Hámarksstærð PDF skjals er 10 MB. 

Verkefnastjóri staðfestir móttöku umsókna og að þær séu í samræmi við ofantaldar kröfur. 

Umsóknum um þátttöku í forvali skal aðeins skilað rafrænt og senda á netfangið listaverk.uppbygging@reykjavik.is.

Umsóknarfrestur er til og með 16. október 2024.