Músíktilraunir
Tónlistarhátíð 11.–21. mars 2027
Músíktilraunir
Músíktilraunir hafa allt frá árinu 1982 verið einn aðalvettvangurinn fyrir ungar íslenskar hljómsveitir og tónlistarfólk á aldrinum 13–25 ára til að koma tónlist sinni á framfæri.
Hitt Húsið heldur Músíktilraunir á hverju vori, en þar keppa 40–50 tónlistaratriði á fjórum undankvöldum um sæti á úrslitakvöldinu í Hörpu, sem er útvarpað á Rás 2 og streymt beint á RÚV 2.
Músíktilraunir 2027
Undankvöld Músíktilrauna 2027 fara fram 11.–14. mars, en úrslitakvöldið 21. mars. Skráning í tilraunirnar hefst í febrúar.
Fylgist vel með!
Myndasafn
Spurningar?
- Sendið línu á menning@hitthusid.is