Marion Poilvez

Nefndarmaður
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi W.O.M.E.N.
Marion Poilvez

Um Marion

Marion Poilvez, gjaldkeri í stjórn W.O.M.E.N. 

Hún starfar sem hótelmóttökustjóri og er doktorsnemi við Háskóla Íslands. Hún situr einnig í stjórn IWW Ísland og styður og upplýsir starfsfólk af erlendum uppruna um réttindi þeirra á vinnumarkaði. Hún hefur brennandi áhuga á menntun og námi og árið 2022 bjó til verkefni Kvennaborðið sem er öruggt rými þar sem konur af erlendum uppruna geta sagt álit sitt á málefnum líðandi stundar og öðlast sjálfstraust í að tala íslensku.

Um W.O.M.E.N. á Íslandi

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi voru stofnuð 24. október 2003.

Hlutverk Samtakanna er að sameina, takast á við og ljá hagsmuna- og áhugamálum kvenna sem sest hafa að á Íslandi rödd. Markmið Samtakanna er að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna af erlendum uppruna á öllum sviðum þjóðlífsins. Á þessari heimasíðu eru upplýsingar um Samtökin, málefni og verkefni sem við störfum við. Einnig birtum við fréttir og tilkynningar um viðburði tengd innflytjenda-, kvenna- og fjölskyldumálum. Í forsvari fyrir Samtök kvenna af erlendum uppruna er stjórn sem kosin er árlega á fundi og situr eitt ár í senn. Samtökin eru opin öllum konum af erlendum uppruna sem búsettar eru á Íslandi.