Leikskóla- og daggæsluráð
Á fundi borgarstjórnar 2. júní 2026 var samþykkt að stofna leikskóla- og daggæsluráð. Ráðið fer með verkefni á sviði leikskóla og daggæslu barna eins og þau eru nú skilgreind í 3. gr. samþykktar skóla- og frístundaráðs þar með talið verkefni leikskólanefndar skv. lögum um leikskóla nr. 90/2008 og verkefni félagsmálanefndar skv. 34. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, að því er lýtur að daggæslu í heimahúsum. Forsætisnefnd var falið að vinna samþykkt fyrir ráðið í samráði við skóla- og frístundaráð sem skal lögð fram til afgreiðslu á fyrsta fundi borgarstjórnar í september 2026 ásamt breytingum á samþykkt skóla- og frístundaráðs. Ráðið starfar samkvæmt samþykkt skóla- og frístundaráðs þar til ný samþykkt liggur fyrir.