Til baka á starfasíðu

Snemmtæk íhlutun - Reynisholt

Við í leikskólanum Reynisholti óskum eftir að ráða til okkar starfsmann í sérkennslu tengt snemmtækri íhlutun, meðal annars málörvun og atferlismótun.

Fullt starf Leikskólinn Reynisholt 113
Sækja um

Sérkennari óskast í leikskólann Reynisholt. Starfið felur í sér að sinna málörvun og atferlismótun fyrir þau börn í leikskólanum sem þess þurfa. Um er að ræða spennandi starf fyrir áhugasaman einstakling um sérþarfir ungra barna.

Viðkomandi myndi fá leiðbeiningar og stuðning frá sérkennslustjóra leikskólans. Starf viðkomandi heyrir undir sérkennsludeild leikskólans.

Um er að ræða hlutastarf eða fullt starf í skemmtilegum starfsmannahópi. Viðkomandi getur byrjað strax eða eftir samkomulagi.

Í leikskólanum er lögð áhersla á lífsleikninám í gegnum snertingu, jóga, umhverfismennt og bernskulæsi.

Í Reynisholti dvelja samtímis 80 börn á fjórum deildum. 

Kjörorð leikskólans eru fagmennska, virðing og vellíðan.

Helstu verkefni og ábyrgð 

  • Að sinna þeim verkefnum er varða málörvun og atferlismótun í sérkennsluteymi leikskólans.
  • Að vinna eftir ráðleggingum sérkennslustjóra um umönnun og stuðning.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af sérkennslu æskileg
  • Reynsla af uppeldisstörfum æskileg 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfsstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenska B1 skv. samevrópska tungumálarammanum

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika
  • sundkort
  • menningarkort
  • Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mán. í starfi
  • afsláttur af dvalargjaldi
  • samgöngusamningur
  • frír hádegismatur
  • forgangur í leikskóla.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Elín Júlíana Sveinsdóttir leikskólastjóri (elin.juliana.sveinsdottir@reykjavik.is) eða Linda Rós Jóhannsdóttir, sérkennslustjóri (linda.ros.johannsdottir@reykjavik.is). 

Nánari upplýsingar um leikskólann eru á heimasíðu leikskólans Reynisholts

Reynisholt er leikskóli staðsettur í Grafarholti, Gvendargeisla 13, 113 Reykjavik. 

Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Sækja um