Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari/leiðbeinandi í leikskóla

Heiðarborg leitar að öflugum og skemmtilegum einstaklingi til starfa. Um 100% starf er að ræða. Starfið er laust nú þegar.

Fullt starf Leikskólinn Heiðarborg 110
Sækja um

Börnin í Heiðarborg vantar kennara/leiðbeinanda í 100% starf. 

Heiðarborg er 4 deilda leikskóli við Selásbraut í Árbæ í næsta nágrenni við falleg útivistarsvæði í Elliðaárdal, Víðidal og við Rauðavatn. 

Einkunnarorð leikskólans eru vinátta-gleði- virðing og lögð er áhersla á að öllum börnum líði vel í leikskólanum. Í uppeldisstarfinu er einkum horft til kenninga Johns Dewey og fjölgreindarkenningar Howards Gardner.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Hæfniskröfur

  • Leyfisbréf kennara eða önnur háskólamenntun.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Fríðindi í starfi

  • Sund- og menningarkort
  • heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Frítt fæði á vinnutíma

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag

Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri: Jóhanna Benný Hannesdóttir á netfanginu johanna.benny.hannesdottir@reykjavik.is eða í síma 411-6571

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag

Sækja um