Til baka á starfasíðu

Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi, stuðningsfulltrúi óskast í Klettaborg

Leikskólinn Klettaborg auglýsir eftir leikskólakennara, þroskaþjálfa eða uppeldisfræðilega menntaðuðum einstakling í sérkennsluteymi leikskólans Klettaborgar. 

Klettaborg er staðsett er í hjarta Hamrahverfis í Grafarvogi.  

Fullt starf Leikskólinn Klettaborg 112
Sækja um

Í Klettaborg er lögð er áhersla á að börn læri í gegnum leik. Markvisst er unnið með læsishvetjandi umhverfi, félagsfærni, og sjálfseflingu barna. Einnig er lögð áhersla á gæði í samskiptum við börn, foreldra og aðra starfsmenn. Starfið í Klettaborg einkennist af leik í flæði sem og í hópum þegar það á við, bæði úti og inni.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Í Klettaborg starfar frábær og samheldinn starfsmannahópur sem okkur hlakkar til stækka og við viljum endilega fá þig í hópinn.

Fríðindi í starfi

  • 36 stunda vinnuvika
  • Menningakort-bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrkur

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir og skipuleggur sérkennslu á viðkomandi deild eða með barni í samvinnu og samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra og sér til þess að starfsfólki deildarinnar taki þátt í kennslu barna sem þurfa sérkennslu.
  • Vinnur að skriflegri einstaklingsnámskrár fyrir barn sem nýtur sérkennslu í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
  • Sér um að einstaklingsnámskrám sé framfylgt og þær endurmetnar í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
  • Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu.
  • Gætir þess að barn sem nýtur sérkennslu einangrist ekki heldur sé hluti af hópnum og eigi hlutdeild í leikskólastarfinu.

Hæfniskröfur

  • Menntun í samræmi við starfslýsingu þ.e. menntun leikskólakennara, menntun þroskaþjálfa, menntun uppeldisfræðings.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Krafist er hreins sakavottorðs í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara eða viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helena Jónsdóttir leikskólastjóri í síma 4113830 og á netfangið helena.jonsdottir@reykjavik.is

Heimasíða

Sækja um