Leikskólakennari - leiðbeinandi óskast í leikskólann Klettaborg (Copied)
Leikskólakennari- leiðbeinandi óskast í leikskólann Klettaborg. Leikskólinn er staðsettur í hjarta Hamrahverfis í Grafarvogi.
Í Klettaborg er lögð er áhersla á að börn læri í gegnum leik. Markvisst er unnið með læsishvetjandi umhverfi, félagsfærni og sjálfseflingu barna. Einnig er lögð áhersla á gæði í samskiptum við börn, foreldra og aðra starfsmenn. Starfið í Klettaborg einkennist af leik í flæði sem og í hópum þegar það á við, bæði úti og inni.
Í Klettaborg starfar frábær og samheldinn starfsmannahópur sem okkur hlakkar til stækka og við viljum endilega fá þig í hópinn.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Menningakort-bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt áherslum leikskólans undir stjórn deildarstjóra.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara eða viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helena Jónsdóttir leikskólastjóri í síma 4113830 og á netfangið helena.jonsdottir@reykjavik.is og Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir starfandi aðstoðarskólastjóri, netfang olof.asta.thorsteinsdottir@reykjavik.is
Umsóknarform