Aðstoð í eldhús - Kvistaborg
Aðstoð vantar í eldhús í Kvistaborg eftir hádegi alla daga. Í Kvistaborg eru 94 börn, 1-5 ára á fjórum deildum. Við eldum allt frá grunni og leggjum okkur fram um að skapa gott og glaðlegt vinnuumhverfi, ásamt því leggjum við metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
Aðstoð í eldhúsi
Kvistaborg er fjögurra deilda leikskóli, staðsettur neðst í Fossvogsdalnum. Einkunnarorð Kvistaborgar eru: hugrekki, hlýja, hlustun og hvatning.
Við erum heilsueflandi leikskóli, og erum svo heppin að hafa matráð og eldhús sem vinnur allt frá grunni. Það er mikilvægt að viðkomandi treysti sér til að elda og hafi áhuga á eldamennsku.
Helstu verkefnin eru frágangur og uppvask eftir máltíðir, vörumóttaka og frágangur og þrif. Eldhúsið sér einnig um þvottahús skólans, þvott og frágang.
Við leggjum áherslu á jákvæni og góð samskipti, sjálfstæði í vinnubrögðum og að viðkomandi geti sýnt frumkvæði í störfum og góða vinnusemi. Mikilvægt er að hafa gaman að börnum og góða þjónustulund. Þsð er kostur ef viðkomandi geti verið sveigjanlegur með vinnutíma og unnið stundum heila daga.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Hæfniskröfur
- Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði í bæði töluðu og rituðu máli -Stig B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
- Menntun og reynsla í eldhússtörfum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum og rík þjónustulund
- Frumkvæði og metnaður í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
- 18 st. vinnuvika miðað við 50% starf að meðaltali
- Sund- og menningarkort
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Hádegismatur
Nánari upplýsingar um starfið
50% starfshlutfall eftir hádegi. Starfið er laust 15. júní eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Gunnarsdóttir gudrun.gunnarsdottir@reykjavik.is sími: 863-1545
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.