Til baka á starfasíðu

Umsjónarkennari óskast í Brúarskóla

Brúarskóli óskar eftir umsjónarkennara frá og með 1. ágúst 2026

Fullt starf Brúarskóli 105
Virkja

Brúarskóli er sérskóli fyrir nemendur í 3. - 10. bekk sem hafa átt erfitt með að fóta sig í almennum skóla. Skólinn er tímabundið úrræði og starfar á fjórum stöðum, í Vesturhlíð, Grafarvogi, Dalbraut og Stuðlum. Í starfinu er lögð áhersla á félagsfærni, samskipti og jákvæða uppbyggingu hvers einstaklings. Meðal annars er unnið út frá áfallamiðaðri nálgun, atferlisstefnu um mótun hegðunar og út frá styrkleikum hvers og eins. Allir nemendur eru með einstaklingsbundin markmið bæði í námi og félagsfærni. Í skólanum er góður starfsandi, teymisvinna og stuðningur við nýtt starfsfólk. Við leitum að hressum og áhugasömum aðila sem er tilbúinn til að sinna skemmtilegu og jafnframt krefjandi starfi.

Hæfniskröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
  • Færni til að vinna í teymi að fjölbreyttum verkefnum
  • Faglegur metnaður
  • Skipulögð vinnubrögð
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og góð þjónustulund.
  • Reynsla af því að vinna með börn og unglinga í alvarlegum geð- og hegðunarvanda æskileg
  • Þekking á því að takast á við erfiða hegðun æskileg
  • Faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta
  • Stundvísi
  • Hreint sakarvottorð

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipuleggja og annast kennslu nemenda í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
  • Vera virkur þátttakandi í teymisvinnu
  • Taka þátt í samstarfi starfstöðva skólans
  • Taka þátt í þróunarvinnu innan skólans
  • Vera nemendum góð og jákvæð fyrirmynd dags daglega

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og sveitarfélaganna.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Björnsson í síma 411-7970 og í tölvupósti olafur.bjornsson@reykjavik.is

Virkja