Verkefnastjóri listasmiðju
Leitum eftir manneskju í stöðu verkefnastjóra listasmiðju ásamt tilfallandi verkefnum. Leikskólinn er 5 deilda með 85 börn á aldrinum 1-6 ára. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia og leggur mikla áherslu á virðingu og vellíðan. Viðbótarupplýsingar má nálgast á netinu: https://reykjavik.is/aevintyraborg-vid-eggertsgotu
Á Ævintýraborg er fjölmenningarlegt samfélag barna og starfsfólks sem vinnur eftir einkunnarorðunum virðing og vellíðan. Listasmiðjustjóri sér um framkvæmd og eftirfylgd á skipulagi og sköpun barna í listasmiðju skólans. Unnið er í teymisvinnu þar sem allir hjálpast að og leiðsögn er fengin frá leikskólastjóra.
Ævintýraborg er fimm deilda leikskóli með 85 börnum og starfar í anda Reggio Emilia. Við höfum nýlega tekið þátt í þróunarverkefni með 5 öðrum skólum við innleiðingu á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og erum þar af leiðandi orðinn Réttindaskóli.
Leikskólinn er staðsettur miðsvæðis í Reykjavík. Í nánasta umhverfi er Norræna húsið, Ægissíðan, Skerjafjörður og fallegar gönguleiðir og staðir sem gaman er að njóta.
Áhersla er lögð á barnið sem færan einstakling þar sem barnið er virkur þátttakandi í námsferlinu. Við viljum hvetja börnin áfram á einstaklingsmiðaðan hátt ásamt því að draga fram styrkleika hvers og eins. Leikskólinn starfar í tveimur húsnæðum á sömu lóðinni en lögð er áhersla á að skólinn er ein heild og því allir hluti af heildinni. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda og samvinnu.
Á leikskólanum færð þú frían hádegismat og átt rétt á sund- og menningarkorti. Auk þess er 36 stunda vinnuvika og samgöngustyrkur í boði fyrir þá sem nota almenningssamgöngur eða ganga/hjóla í vinnu.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starfið er laust eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að veita börnum tækifæri til sköpunar.
Að vinna samkvæmt hugmyndafræði Reggio Emilia.
Að sinna þeim verkefnum er varða listasmiðju, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun, listgreinamenntun, uppeldismenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af starfi með börnum er æskileg
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
Góð íslenskukunnátta - B2 samkvæmt íslenska tungumálarammanum -Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP)
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Petrína Pétursdóttir í síma 411-6750 og tölvupósti kristin.petrina.petursdottir@reykjavik.is
Leikskólinn Ævintýraborg við Eggertsgötu
Eggertsgata 35
102 Reykjavík