Teymisstjóri neyðarskýlis á Lindargötu
Öflugur stjórnandi óskast til starfa í neyðarskýli fyrir karlmenn sem hafa átt við langvarandi heimilisleysi að stríða.
Vesturmiðstöð leitar að framsýnum og metnaðarfullum leiðtoga á neyðarskýli fyrir karlmenn sem hafa átt við langvarandi heimilisleysi að stríða.
Hlutverk neyðarskýlisins er að veita heimilislausum karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir tímabundið skjól og viðeigandi aðstoð. Unnið er samkvæmt stefnu Reykjavíkurborgar í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum dvalargesta á heildrænan og einstaklingsmiðaðan hátt. Hugmyndafræði skaðaminnkunar skal vera höfð að leiðarljósi í þjónustu við gesti neyðarskýla Reykjavíkurborgar.
Vinnutími teymisstjóra skiptis í 50% fagvinnu og 50% vaktir. Fagvinna á sér stað á dagvinnutíma og vaktir eru dag-, kvöld- og helgarvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegri þjónustu við gesti í samráði við forstöðumann.
- Yfirsýn með verklagi og ábyrgð á útdeilingu verkefna til starfsfólks.
- Leiðir þverfaglegt samstarf innan sem utan Reykjavíkurborgar varðandi einstaklingsbundin mál gesta.
- Þátttaka í þróunar- og umbótavinnu innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir.
- Vinnur með gestum og starfsfólki út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði og áfallamiðaðri nálgun.
- Tryggir að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda.
- Reynsla af starfi með heimilslausu fólki.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Þekking og reynsla af skaðaminnkandi nálgun, notendasamráði og áfallamiðaðri nálgun.
- Umburðarlyndi, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Íslenskukunnátta B2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Hlunnindi
- 36 stunda vinnuvika
- Samgöngu- og heilsuræktarstyrkir
- Sund- og menningarkort
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingi Þór Eyjólfsson í tölvupósti Ingi.Thor.Eyjolfsson@reykjavik.is