Til baka á starfasíðu

Skrifstofustjóri

Fossvogsskóli auglýsir eftir öflugum og metnaðarfullum skrifstofustjóra. Skrifstofustjóri ber ábyrgð á rekstri skrifstofu skólans, almennu skrifstofuhaldi og starfsmannahaldi í samvinnu við skólastjórnendur. 

Fullt starf Fossvogsskóli 108
Virkja

Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í ein fallegustu útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 350 í 1. – 7. bekk og starfsmenn eru rúmlega 50.

Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla. Í skólanum er unnið með læsi á fjölbreyttan máta og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppeldis til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir hennar endurspegli það margbreytilega samfélag sem hún er.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Innkaup rekstarvara til skólans og innkaupum námsbóka.
  • Gerð ráðningarsamninga og vinnuskýrslna ásamt skilum til launadeildar.
  • Skráning forfalla og skipulag forfallakennslu í samráði við skólastjórnendur.
  • Skjalavarsla, s.s. skráning og skipulag.
  • Nemendabókhald skólans, s.s. útprentun einkunna og fjarvistaskráa og hefur umsjón með vinnu tengdri Mentor upplýsingakerfinu. 
  • Samþykkt reikninga í Agressso.
  • Skráningar í Mentor.
  • Umsjón með skrifstofubúnaði og aðstoð við starfsfólk við notkun hans. 
  • Önnur verkefni sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfssviðs hans. 

Grunnkröfur og hæfni

  • Stúdentspróf.
  • Viðbótarnám, t.d. bókhalds- og skrifstofunám æskilegt.
  • Reynsla af starfi með börnum æskileg.
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi.
  • Reynsla af skrifstofustörfum.
  • Reynsla af bókhaldskerfum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Góð greiningarhæfni og námkvæmt vinnubrögð.
  • Góð tölvukunnátta s.s. exel, word, bókhalds- og launakerfi.

Umsækjendur eru beðnir um að sýna fram á í kynningarbréfi og ferilskrá hvernig þeir uppfylla hverja hæfniskröfu. Þeir umsækjendur sem uppfylla best allar hæfniskröfur og sýna fram á það með skýrum hætti í umsókn sinni verða boðaðir í viðtal.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins „Betri borg fyrir börn“ og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Jafnframt er krafist hreins sakavottorðs í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Helen Eiðsdóttir skólastjóri í síma 411-7570/6977733.

Starfið er laust í 100% starfshlutfall. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf og kynningarbréf.

Virkja