Stuðningsráðgjafi óskast á heimili fyrir börn
Starfsmaður með háskólamenntun óskast í stöðu stuðningsráðgjafa á heimili fyrir börn í Móvað 9.
Móvað 9 er heimili fyrir fötluð og langveik börn og leitum við að ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi í starf stuðningsráðgjafa.
Sólarhringsþjónusta er veitt á heimilinu og markmið þjónustunnar er að búa börnum hlýlegt, friðsælt og öruggt heimili með hliðsjón af einstaklingsbundnum þroska, getu og aldri þeirra. Jafnframt að tryggja góð og jákvæð samskipti við foreldra/forsjáraðila. Teymisvinna er veigamikil í samræmi við ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Spennandi tækifæri fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að taka þátt í þróun starfseminnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Hvetur og styður einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
Styður einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. rækta félagatengsl, stunda afþreyingu, sækja menningarviðburði og íþróttir.
Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðarins.
Framfylgir og aðstoðar starfsfólk við að framfylgja einstaklingsáætlunum í samráði við stjórnendur.
Tekur þátt í teymisvinnu og þróunarstarfi.
Skráning og meðferð gagna í samræmi við verklag starfsstaðar.
Tekur þátt í samstarfi við fagaðila, aðra starfsmenn og foreldra/aðstandendur.
Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Hæfnikröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, heilbrigðismenntun er mikill kostur.
Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum.
Áhugi á að starfa með börnum.
Afburðahæfni í mannlegum samskiptum.
Metnaður, skipulagshæfni, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Íslenskukunnátta C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar:
Um er að ræða vaktavinnu, á dag- kvöld- og helgarvöktum og starfshlutfall er 50-80%
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags.
Krafa er gerð um að skila inn ferilskrá og kynningarbréfi í umsókn annars verður umsóknin ekki tekin til greina.
Nánari upplýsingar veitir Sandra Guðlaugsdóttir forstöðumaður, sandra.vilborg.gudlaugsdottir@reykjavik.is