Umsjónarkennari á miðstig
Umsjónarkennari á miðstig
Hlíðaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 10. bekk og er staðsettur við Hamrahlíð 2.
Í skólanum eru rúmlega 610 nemendur og er starfrækt við skólann Táknmálssvið. Starfsmenn skólans eru um 120.
Hlíðarskóli er þekkingarskóli í leiðsagnarnámi og hefur mikinn metnað fyrir listgreinum, leiklist og söng.
Kjörorð skólans eru ábyrgð, virðing og vinsemd og eru þau leiðarljós í öllu skólastarfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur
- Vinna að þróun skólastarfs með samstarfsfólki
- Stuðla að velferð nemenda
- Vinna samkvæmt stefnu skólans
Hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Heiðarleiki og stundvísi
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína ásamt öllum fylgiskjölum í gegnum vef Reykjavíkurborgar um laus störf sem starfið er auglýst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Stefánsdóttir skólastjóri í síma 4116650 eða í gegnum tölvupóst berglind.stefansdottir@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.