Dönskukennari í Hagaskóla með umsjón
Hagaskóli leitar að dönskukennara með umsjón fyrir skólaárið 2026-2027.
Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með rúmlega 600 nemendur í 8. til 10. bekk. Spennandi starf í skóla þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, samvinnu, skapandi verkefni og leiðsagnarnám.
Dönskukennari í Hagaskóla með umsjón
Hagaskóli leitar að dönskukennara fyrir skólárið 2026-2027. Um er að ræða fullt starf.
Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með rúmlega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, samvinnu, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.
Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf fyrir kennslu auk annarra gagna er málið varðar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda í samráði við stjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vera umsjónarkennari í einum bekk.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara.
- Kennaramenntun með áherslu á dönsku.
- Brennandi áhugi og þekking á hugmyndum leiðsagnarnáms.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og SÍ.
Frekari upplýsingar veitir Guðrún Inga Tómasdóttir, deildarstjóri mannauðs og rekstrar í Hagaskóla, gudrun.inga.tomasdottir@reykjavik.is