Ritari – Foldaskóli
Laus er til umsóknar 50% staða ritara við Foldaskóla skólaárið 2026-2027.
Foldaskóli er heildstæður grunnskóli þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag og fjölbreytta kennsluhætti. Nemendur við skólann eru tæplega 500 en ásamt því að vera hverfisskóli nemenda í 1.-10. bekk í Foldahverfi er hann safnskóli á unglingastigi fyrir Hamra- og Húsahverfi. Við skólann er starfrækt Foldaver, sérdeild fyrir einhverfa.
Leiðsagnarnám og skapandi lærdómssamfélag einkenna skólann ásamt sterkri umhverfisvitund og heilsueflingu en skólinn tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli og fylgir grænum skrefum Reykjavíkurborgar. Umhverfi skólans býður upp á mikla möguleika þar sem hann er í nálægt við Grafarvoginn sem státar af fjölbreyttri náttúru og iðandi fuglalífi.
Einkunnarorð skólans eru: siðprýði – menntun – sálarheill
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið eftir Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins Betri borg fyrir börn og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofunnar, innkaup á námsbókum og stærri innkaupum rekstrarvara
- Móttaka og þjónusta við starfsfólk, nemendur, foreldra og gesti
- Símsvörun og miðlun upplýsinga
- Umsjón með vinnuveri fagfólks
- Umsjón með forfallaskráningu
- Önnur tilfallandi verkefni sem skólastjórnendur fela ritara
Hæfniskröfur
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur
- Góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum
- Góð tölvukunnátta (excel, word o.fl.)
- Reynsla af störfum með börnum er æskileg
- Góð samskiptafærni og nákvæm vinnubrögð
- Þjónustulund og fagleg framkoma
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði (C1)
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Starfshlutfall – 50%
Ráðningarform – Tímabundin ráðning
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafía María Gunnarsdóttir skólastjóri Olafia.maria.gunnarsdottir@reykjavik.is