Forstöðumaður á Njáls- og Skeggjagötu
Vesturmiðstöð leitar að framsýnum og metnaðarfullum forstöðumanni yfir tveimur þjónustuúrræðum í málaflokki HMFÞ.
Vesturmiðstöð leitar að framsýnum og metnaðarfullum forstöðumanni yfir herbergjasambýli fyrir karlmenn og tímabundið áfangahúsnæði innan málaflokks heimilislausra. Viðkomandi veitir faglega forystu og verður leiðandi í þróun húsnæði fyrst þjónustunnar fyrir karlmenn sem stríða við heimilisleysi.
Markmið með þjónustunni er að veita einstaklingum sem stríða við heimilisleysi viðeigandi þjónustu undir formerkjum húsnæði fyrst hugmyndafræðinnar (HF). Með því eru gerðar ákveðnar kröfur um skipulag og innihald þjónustunnar. Þjónustan er einstaklingsmiðuð, batamiðuð og tekur mið af hugmyndafræði um skaðaminnkun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stýring og rekstur
- Þátttaka í stefnumótun ásamt þróun og uppbyggingu HF þjónustu
- Samstarf við helstu hagsmunaaðila, s.s. notendur, samstarfsaðila og nágranna
- Tryggja að framkvæmd þjónustunnar sé í samræmi við lög, reglur, stefnur og markmið velferðarsviðs og Reykjavíkurborgar
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta eða félagsvísinda.
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg
- Reynsla af störfum með einstaklingum með fjölþættan vanda
- Reynsla af stjórnun sambærilegs úrræðis
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagshæfni, frumkvæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þekking og brennandi áhugi á skaðaminnkun, Húsnæði fyrst hugmyndafræði og batahugmyndafræði.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Nánari upplýsingar um starfið
Laun er samkvæmt samningi Reykjavikurborgar og viðkomandi stéttarfélagi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Soffía Hjördís Ólafsdóttir, deildarstjóri í málaflokki HMFÞ í tölvupósti Soffia.Hjordis.Olafsdottir@reykjavik.is.