Sumarstarfsmaður í Leikskólann Suðurborg
Sumarstarfsmaður í leikskólann Suðuborg
Sumarstarfsmaður óskast til starfa í leikskólann Suðurborg, Suðurhólar 19, 111. Starfið er laust nú þegar.
Um er að ræða starf með börnum á aldrinum 1-6 ára. Suðurborg er 6 deilda leikskóli og þar dvelja 106 börn.
Við leitum að skapandi og áhugasömu fólki með margvíslega menntun, reynslu og þekkingu sem hefur áhuga á að vinna með ungum börnum. Starfið í leikskólanum Suðurborg er fjölbreytt, skemmtilegt og krefjandi, enginn dagur er eins en á hverjum degi getum við sameinast um að leggja dýrmætan grunn að þekkingu og þroska barna.
Í leikskólanum er lögð áhersla á stuðning við jákvæða hegðun (PBS) og að efla mál og læsi. Leikskólinn er auk þess sérhæfður leikskóli fyrir börn með einhverfu þar sem áherslan er á atferlisíhlutun.
Anna Rún Gylfadóttir leikskólastjóri veitir nánari upplýsingar um starfið í síma 411-3220 eða í netfanginu anna.run.gylfadottir@reykjavik.is / sudurborg@reykjavik.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
- Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt íslenska tungumála rammanum
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Samgöngustyrkur