Til baka á starfasíðu

Leikskólakennari/þroskaþjálfi/sérkennari - snemmtæk íhlutun

Leitað er að þroskaþjálfa/sérkennara/leikskólakennara til að sinna snemmtækri íhlutun í leikskólanum Múlaborg, þar sem lögð er áhersla á að öll börn fái að njóta barnæsku sinnar óháð heilsu, uppruna og getu.

Fullt starf Leikskólinn Múlaborg 108
Virkja

Múlaborg er 7 deilda leikskóli með tvær starfsstöðvar í Ármúla auk útikennslusvæðis sem heitir Birkilundur. 

Á Múlaborg leggjum við áherslu á jafnrétti í víðu samhengi. Jafnrétti felst meðal annars í því að jafna rétt karla og kvenna en líka í því að einstaklingar með og án fötlunar geti fengið að njóta þess að læra, vinna og vera saman. Múlaborg er ráðgjafaleikskóli sem veitir fagfólki, nemum, foreldrum og öðrum áhugasömum ráðgjöf vegna kennslu barna með fötlun.

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með börnum og styðja við þroska þeirra í gegnum snemmtæka íhlutun. Í því felst að veita börnum tímabundinn einstaklingsmiðaðan stuðning í leik og námi. Starfið er fjölbreytt og kallar á að vinna í teymi með deildarstjórum og sérkennslustjórum og fara á milli deilda með ákveðin verkefni hverju sinni.

Hæfniskröfur

  • Leikskólasérkennaramenntun/Þroskaþjálfamenntun 
  • Reynsla af sérkennslu
  • Reynsla af leikskólastörfum
  • Góð íslensku kunnátta ekki minna en B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna undir stjórn sérkennslustjóra og deildarstjóra. Í því felst:

  • Málörvun barna
  • Efla færni í leik, samskiptum og námi
  • Styðja við þroska barna
  • Vinna eftir áætlunum um íhlutun í samvinnu við sérkennslustjóra.

Fríðindi í starfi

  • 36 tíma vinnuvika
  • Sundkort 
  • Menningarkort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Frír matur á vinnutíma
  • Samgöngustyrkur

Starfshlutfall 100%

Nánari upplýsingar um starfið

Kalina Klopova leikskólastjóri

kalina.klopova@reykjavik.is

s. 411-7272/892-4648

Leikskólinn Múlaborg -Ármúli 6 og 8a, 108 Reykjavík

Virkja