Til baka á starfasíðu

Starfsmaður í þjónustukjarna við Sléttuveg

Hefurðu áhuga á gefandi og fjölbreyttu starfi í sumar og tilheyra öflugu teymi starfsfólks ? 

Um er að ræða starf með fjölbreyttum áskorunum sem miðar að því að veita stuðning við einstaklinga í sjálfstæðri búsetu.  

Mjög skemmtilegt og gefandi starfsumhverfi.

Fullt starf Heimaþjónusta Sléttuvegi 103
Sækja um

Heimaþjónusta Sléttuvegi auglýsir eftir sumarafleysingu við samþætta þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings sumarið 2026.

Um er að ræða vaktavinnu á sólarhringsstað og getur starfshlutfall verið samkvæmt samkomulagi.

Á Sléttuvegi starfar þéttur og samheldinn hópur starfsfólks. Jákvæðni og liðsheild einkennir vinnustaðinn. Lögð er áhersla á þverfaglegt starf í samráði við þjónustuþega og sinnum við fjölbreyttri þjónustu til einstaklinga í sjálfstæðri búsetu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.

Verkefni og ábyrgð

  • Starfað er eftir Velferðarstefnu Reykjavíkurborgar og hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.
  • Hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Veita einstaklingsmiðaða og sveigjanlega aðstoð við athafnir dagslegs lífs, s.s. við heimilishald, vinnu, samfélagsþátttöku og félagslega virkni.
  • Aðstoð við umönnun og aðhlynningu.

Hæfnikröfur

  • Viðkomandi þarf að hafa náð a.m.k. 18 ára aldri.
  • Reynsla af heimaþjónustu eða öðrum sambærilegum störfum er kostur.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta A1-B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Stundvísi.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Dröfn Þórðardóttir forstöðumaður hildur.drofn.thordardottir eða í síma 664-7864 

Sækja um