Staða þroskaþjálfa í Hamraskóla
Laus er 100% staða þroskaþjálfa í Hamraskóla. Skólinn er staðsettur í Hamrahverfinu í Grafarvogi og nemendur eru kringum 230 nemendur frá 1.-7. bekk. Unnið er skv. hugmyndafræði leiðsagnarnáms og er það rauður þráður í starfinu. Í skólanum starfar samhentur hópur sem vinnur að velferð nemenda okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að annast þjálfun og umönnun nemenda með fatlanir.
- Að þjálfa samskipta- og félagshæfni nemenda sem þess þurfa með.
- Að skipuleggja þjálfunaraðstæður, útbúa þjálfunargögn og fylgja því eftir að unnið sé að settum markmiðum.
- Að annast upplýsingagjöf og upplýsingaöflun vegna sérþarfa skjólstæðinga sinna.
- Að veita foreldrum og kennurum og öðrum starfsmönnum leiðbeiningar og ráðgjöf.
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og skipulagshæfileikar
- Menntun í þroskaþjálfafræðum.
Nánari upplýsingar veitir Anna Bergsdóttir, skólastjóri, sími 4116800 eða anna.bergsdottir@reykjavik.is