Til baka á starfasíðu

Hópstjóri - kerfisstjórn og vöktun

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að hópstjóra til að leiða teymi kerfisstjórnunar og vöktunar hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar til að vinna að uppbyggingu og framþróun þjónustuferla við notendur.

Fullt starf Reykjavíkurborg
Virkja

Hefur þú brennandi áhuga á ferlum, þjónustu og tækni?

Þá gæti þetta verið starf fyrir þig...

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að öflugum hópstjóra til að leiða teymi kerfisstjórnunar og vöktunar hjá upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Markmið starfsins er að vinna að uppbyggingu og framþróun þjónustuferla við notendur. Hópstjóri hefur yfirsýn yfir verkefni teymisins, tölfræði þjónustunnar og tryggir að hún sér örugg, áreiðanleg, skilvirk og í samræmi við þær kröfur og væntingar sem til hennar eru gerðar.

Sem hópstjóri kerfisstjórnunar og vöktunar munt þú...

  • Stýra og halda utan um teymið
  • Stýra verkefnum samkvæmt verklagi upplýsingatækniþjónustu
  • Bera ábyrgð á innleiðingu og utanumhaldi þjónustuferla
  • Hafa yfirsýn yfir fjármál teymisins og samþykkja reikninga
  • Taka þátt í setningu og eftirfylgni árangursmarkmiða
  • Taka þátt í samstarfshópum
  • Vera stuðningur við deildarstjóra tæknireksturs

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun kostur
  • Framúrskarandi leiðtogafærni
  • Reynsla af stjórnun teyma
  • Þekking og reynsla af þjónustuferlum
  • Reynsla af fjárhagsáætlanagerð og annarri áætlanagerð
  • Hæfni til greiningar og miðlunar á gögnum
  • Haldbær tækniþekking
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu  
  • Skipulögð, sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
  • Lausnamiðuð hugsun og rík þjónustulund
  • Drifkraftur, frumkvæði og metnaður
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika

Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum mikið upp úr faglegu umhverfi þar sem frumkvæði og þori er fagnað. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf borgarbúa og starfsfólks borgarinnar.

Á dögunum vann þjónustu og nýsköpunarsvið til UT-verðlaun Ský 2025 í flokknum stafræn opinber þjónusta.

Þjónustu- og nýsköpunarsvið er regnbogavottaður vinnustaður. Markmið með regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi hennar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og einnig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks.

Við bjóðum upp á

  • Fyrsta flokks vinnustað
  • Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
  • Verkefni sem stuðla að því að einfalda og bæta líf starfsfólks og borgarbúa
  • Krefjandi og skemmtileg verkefni
  • Öfluga nýliðamóttöku
  • Sálrænt öryggi og skapandi menningu
  • Góða liðsheild og góð samskipti
  • Samkennd og virðing
  • Þekkingarumhverfi
  • Fjölbreytta þjálfun og möguleika á þróun í starfi
  • Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
  • Heilsueflandi vinnustað
  • Gott vinnuumhverfi
  • 30 daga í sumarleyfi
  • 36 stunda vinnuviku
  • Fyrsta flokks vinnuaðstöðu
  • Heilsu- og samgöngustyrk
  • Sundkort
  • Menningakort

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 13. maí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Baldur Þorsteinsson deildarstjóri tæknireksturs í gegnum tölvupóstfangið eirikur.baldur.thorsteinsson@reykjavik.is. Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem umsækjandi gerir grein fyrir áhuga og hæfni í starfið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum ásamt frammistöðu í viðtölum. Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Reykjavíkurborg er skapandi og metnaðarfullur vinnustaður ásamt því að vera sá stærsti á Íslandi.

Vakin er athygli á stefnu um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er

Virkja